22.9.2011

Tæknibrellur

Um nokkurra ára skeið hef ég verið haldin prjónaáráttu. Áráttan snýst aðallega um að læra nýjar tæknibrellur og framan af góndi ég gjarnan á youtube þar sem amerískar prjónadívur með mergjaðan hreim sýndu listir sínar. Ég var sérdeilis sólgin í flóknar uppskriftir og snúin verkefni en um leið og ég réð fram úr þeim og náði á þeim tökum þurfti ég að fá eitthvað nýtt að læra.

Um síðustu áramót þótti mér ég eiga orðið heldur mikið af garni. Mér fannst næstum eins og taugakerfið í sjálfri mér væri í beinu sambandi við vaxandi garnbirgðir og því fylgdi stígandi óþol. Ég vil ekki hafa of mikið af dóti í geymslu, það er betra að geyma það úti í búð. Ég ákvað að frá og með ársbyrjun skyldi ég ekki kaupa eina garnhnotu fyrr en gengið hefði á byrgðarnar svo um munaði. Nú er farið að rofa til enda hef ég fundið upp á ýmsum ágætum leiðum til að losa mig við garnið. Raunar hef ég verið svo dugleg að ég ákvað að verðlauna mig í dag með því að fara með garn í poka í Bjarkarás og gefa. Það var gott.



Hér eru örmyndir af peysu sem ég er að prjóna nú um stundir úr færeyskri ull. Uppskriftin er eftir danskan hönnuð sem ég er búin að læra margt af. Bráðum ætla ég að leggja prjónana mína á hilluna og geyma þá þar í svona 20 ár. Það hef ég gert áður og svo undarlegt sem það er þá fer manni fram við það líka.

20.9.2011

Borgundarhólmsvasi og munablæti

Systir mín dvelur gjarnan á Borgundarhólmi í sumarleyfinu sínu. Þá leigir hún hús í Svaneke, sem er fallegt, lítið þorp á austurhluta eyjunnar. Við heimsóttum hana einu sinni. Það er hverrar krónu virði að fara til Bornholm.

Á eyjunni þverfótar ekki fyrir keramiksverkstæðum.

Um helgar þverfótar ekki fyrir skranmörkuðum. Þar eru einkum og sér í lagi til sölu eldhúsvogir eins og voru til á hverju íslensku heimili í eina tíð; þær voru festar á vegg með skálinni á og svo tók maður skálina út og helli hveitinu í. Ef einhvern langar í þess háttar vog fær hann hana pottþétt á laugardegi á Borgundarhólmi.

Ég keypti mér einn hlut á skranmarkaði í Neksø, og það er þessi keramikvasi:



Ég væri sjálfsagt fyrir löngu búin að losa mig við hann ef ekki væri fyrir það hvar ég keypti hann. Ég segi við sjálfa mig í hvert skipti sem ég handfjatla hann, „Þennan vasa keypti ég á Borgundarhólmi,“ og rifja upp í leiðinni hvað allt er fallegt þar. Um daginn setti ég í vasann falleg og ilmandi sorgarblóm.

Og vegna þess að bróðir minn, sem hélt úti því sem hann kallaði munablætisblogg, hefði fundið út með hraði hvaða frómi keramiker renndi vasann datt mér í hug að bera hveiti á botninn. Þá kom þetta í ljós:



Vasinn er sem sé frá Søholm stentøj á Borgundarhólmi - ég skil ekki fangamarkið og á ekki von á úr þessu að úr því rætist.

17.9.2011

Hundahald

Það er gaman að koma til Akureyrar. Þar býr til að mynda Nagli, sem þykir gott að fara út að ganga. Nagli er bæði blíður og skapgóður hundur enda vel viðraður. Myndin var tekin 17. júní í vor og þá passaði Hrafn göngugarpur bæði í skóna sína og stakkinn, það gerir hann ekki lengur.

Akureyringar flokka ruslið sitt. Hvenær ætlum við Reykvíkingar að byrja á því?