11.8.2008

Allir kunna að brosa, þó augun felli tár,
allir reyna að græða sín blæðandi sár,
alltaf birtist gleðin þótt eitthvað sé að,
allir þekkja ástina, undarlegt er það.
Maðurinn er steyptur úr misjöfnum málm,
maðurinn á skylt við hinn blaktandi hálm.
Maðurinn er knörr, sem klýfur ölduföll,
kraftur sem rís hátt eins og gnæfandi fjöll.
Maðurinn er vetur með myrkur og tóm,
maðurinn er sumar með geisla og blóm,
maðurinn er ljósbrigði, mikil og tvenn,
maðurinn er tími og eilífð í senn.

Brot eftir Ólínu Andrésdóttur.
Gunnar Stefánsson fjallaði um hana og tvíburasystur hennar Herdísi á Rás 1 á þjóðhátíðardaginn. Sátum í bíl á suðurleið eftir 25 ára júbíleum í MA og vorum komin á fremsta hlunn með að slökkva á tækinu - áttum von á einhverju með þjóðernisívafi ... en reyndin varð heldur betur önnur. Mitt fyrsta verk á virkum degi var að ná mér í ljóðasafn systranna.

7.8.2008

There is a crack, a crack in everything
That´s how the light gets in.


Spakmæli dagsins eru frá Leonard Cohen.

Datt niður á forvitnilega tónlist, á npr.org: Sara Tavares

3.8.2008



Við fórum auðvitað á gamla vinnustað bóndans.


Úff .... törn framundan .... þrífa þrífa. Ef að líkum lætur verður ekki auðvelt að hemja sig, hér verður hægt að fremja skurðaðgerð í kvöld án minnstu komplikasjóna.

Mamma mín: Ég sendi þér póst á heimanetfangið þitt, viltu lesa það og svara við fyrsta tækifæri.