23.5.2015

Gler



Per Lütken blés gler hjá Holmegaard, m.a. þennan öskubakka. Ég á öskubakkann sjálf, er búin að eiga hann lengi en hafði ekki hugmynd um hverrar ættar hann er fyrr en nú í morgun. Minnstu munaði að ég gæfi hann frá mér í Góða hirðinn þegar ég var í grisjunar ham en nú fær hann að vera hér áfram. Bleiki veggurinn er blekking.


Þessir vasar hafa einnig verið nokkuð lengi til heimilis hér. Því miður veit ég engin deili á þeim en einu sinni fann ég langt og ýtarlegt blogg úti í heimi þar sem var urmul af myndum af honum. Nú er ég búin að týna blogginu.

19.5.2015

Ilmur græðandi vors


Í Botanisk hage í Osló gætir margra grasa - bókstaflega - og þau voru í marglitum blóma um miðjan maí. Á sama tíma hangir ekki lauf á íslensku tré. Veðurbarinn Íslendingur ætti að safna sér fyrir vorferð suður á bóginn þótt ekki væri nema yfir helgi. Það má fá flugfar á ósanngjörnu verði, sem sé fyrir tiltölulega lítið fé, ef maður er þokkalega fyrirhyggjusamur og skipuleggur sig snemma. Það er nefnilega eitthvað græðandi við gróður.




Annars hringdi í mig ungur maður í gær og sagði mér allt, hreinlega allt, um starfsemi UNISEF á Íslandi. Hann vildi þakka mér fyrir stuðninginn við samtökin um daginn þegar verið var að safna fyrir börnin í Nepal eftir jarðskjálftana. Ég vil gjarnan gefa án þess að mér sé þakkað fyrir það; mér fannst næstum óþægilegt að fá allar þessar vel smurðu, vel útilátnu þakkir. En svo fórum við að tala um gróðurinn og þá sagði hann mér af ösp sem hann sá niðri í bæ. Hann fann á henni brum og hún ilmaði!