Æðiber

Við vorum öll með æðiber í rassi í dag nema menntskælingurinn sem kom heim upp úr hádegi dauðþreyttur eftir vökunótt í busaferð. Höfðuð fjölskyldunnar stundar sprunguviðgerðir af kappi - af nógu er af taka - húsið liggur undir skemmdum enda hefur það ekki fengið nokkurt viðhald frá því það var málað í upphafi. Ég greip í verkið með honum á milli þess sem ég klagaði slappan blaðbera, fór í 90 mínútna yogatíma, kláraði ullarteppið sem þið sjáið á myndinni, sauð saman rabarbara- og engifer sultu (tvær krukkur) eftir engri uppskrift (mjög bragðgóð og -sterk), skipti á rúmum og þvoði fimm þvottavélar (2x rúmföt, leikfimiföt, flíspeysa, jakkaföt) auk tveggja X (segi ekki meir) þar af var önnur með sturtu og öllu. Ég gleymi örugglega einhverju. Ég skildi ekkert í því af hverju ég var svona þreytt um kvöldmatarleytið.
2 Aths.:
ótrúlega dugleg :)
kemst ekki með hælana þar sem þú hefur tærnar...
(hehehe...hef á tilfinningunni að þetta sé eitthvað vitlaust máltæki)
flott teppi og ótrúlega dugleg kv Dagny
Skrifa ummæli
<< Á forsíðu